Forsíða > Útvistun  

FORSÍÐA

UM FJÁRSTOÐ

MARKMIÐ

STARFSMENN

ÚTVISTUN

SPURT OG SVARAÐ

FRÉTTIR

HAFÐU SAMBAND

STARFSTÆKIFÆRI

Tenglar

Útvistun

Hvað er útvistun?
Nú færist sífellt í vöxt að fyrirtæki sjái sér hag í því að fela utanaðkomandi sérfræðingum umsjón með tilteknum þáttum starfseminnar. Þetta hefur verið nefnt útvistun á íslensku, sem margir þekkja undir enska orðinu "outsourcing".  Ein tegund útvistunar er umsjón með tölvu- og netkerfum, sem sérhæfðar kerfisveitur annast nú í auknum mæli (Application Service Providers). 
Fjárstoð sérhæfir sig í útvistun verkferla á fjármálasviði (Business Process Outsourcing).  Breytt tækniumhverfi með auðveldari fjarvinnslu, almenn aukning vélrænnar vinnslu, flóknari viðskiptakerfi og aukin krafa um sérfræðikunnáttu, hefur orðið til þess að stjórnendur sjá nú augljóst hagræði í því að útvista þennan þátt starfsemi sinnar.


Hvers vegna velja fyrirtæki að útvista?
Með því að fela sérfræðingum umsjón með hefðbundnum störfum "stoðdeilda" gefst stjórnendum meira tóm til að einbeita sér að kjarnastarfsemi sinni, þar sem raunveruleg verðmætasköpun fyrirtækisins á sér stað.  Reynslan hefur sýnt að um leið næst fram kostnaðarlækkun, þar sem sérhæfð þjónustufyrirtæki eru betur í stakk búin til þess að ná fram hagræðingu í verkferlum og kostnaður hverju sinni helst í hendur við umfang þjónustunnar.  Dæmi sanna að kostnaðarlækkunin getur numið allt að 40%.  Vegna sérhæfðra starfsmanna má ennfremur búast við auknum gæðum verkferla og skilvirkari upplýsingum úr kerfum.  Að auki fá stjórnendur aðgang að þekkingu sérhæfðra starfsmanna og öðlast meiri sveigjanleika í rekstrinum, þar sem ýmiss ófyrirséður kostnaður, eins og við ráðningu starfsmanna, heyrir sögunni til.


Útvistun verkferla á fjármálasviði
Stjórnendur kunna að slá varnagla við því að fela utanaðkomandi aðilum umsjón með svo viðkvæmum þáttum sem bókhaldi og launavinnslu fyrirtækisins. Þó má færa rök fyrir því að útvistun verkferla á fjármálasviði sé í raun mun áhættuminni, en t.a.m. útvistun á auglýsinga- og markaðsmálum. Þeir þættir eru háðir túlkun viðkomandi aðila og snerta ímynd fyrirtækisins beint og viðskipavini þess.  Bakvinnsla á fjármálasviði snertir ekki viðskiptavinina beint, þar er fengist við grundvallarreglur og meðferð upplýsinga er því að mestu leyti stöðluð.  Jafnframt er tryggt er að hún sé í höndum fagmanna




 Til baka
september 2010
s m þ m f f l
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
1
2

Fjárstoð ehf. | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogi | Sími 556 6000 | Fax: 556 6001 | fjarstod@fjarstod.is